Blogg hummm bloggSylvía Sigurðardóttir
Já þá er komið að bloggi fyrir Bengtu mína hehehe.....
Bara hef haft svo geðveikislega mikið að gera að ég hef bara ekki haft neinn tíma eða heila í það að blogga ....
En jú nú er að koma að því Grímuball Kryddpíanna er núna á laugardaginn og er kominn mikill spenningur í alla ég verð prinsessa híhí... hlakka svo til að verða prinsessa einn dag eða drukkin prinsessa eitt kvöld ;)
Ég að vona á 8 gestum og gestirnir mínir koma fár akureyr,i dalvík og reykjavík já það er satt Bengta mín ættlar að koma norður til mín á morgun föstudag og taka þátt í þessu með mér og mínum hlakka svo til að fá hana :) og Ásta Kristin er á leiðinni norður núna og er reyndar að koma norður til að eiga rómantíska ferð hehehe en hún ætlar sko ekki að láta sig vanta. Það verður svo gaman að hitta þær og djamma feitt með þeim.
Allir eru í óða önn að reyna að redda sér búningum og græja og gera en mín lætur sko sérsauma á sig hehehe skórnir eru kminr í hús eins glingrið.
En jæja ég hef bara ekki tíma í meira núna en da var þetta bara fyrir Bengtu hehehe.. Held svei mér þá að hún sé sú eina sem kíkir hingað inn...
En ef það eru fleiri sem kíkja á síðuna væri gott að fá kvitt :)






